Veitingastaðurinn Silfur

Veitingastaðurinn Silfur á Hótel Borg býður upp á ljúffenga sælkerarétti sem bornir eru fram í fallegu umhverfi.

Listakokkar Silfurs fara með íslenskt eldhús á nýjar slóðir með matargerð sem hefur hlotið einstaklega góðar viðtökur. Ávallt er unnið með hágæða hráefni og boðið upp á fjölbreytt úrval vína til að njóta með matnum. Framsetning Silfurs á eðalréttum hefur sett nýjan staðal í íslenskri matargerð sem hvergi er hægt að nálgast annars staðar. Komdu á Silfur til að upplifa af eigin raun hvað það er sem gerir veitingahúsið svona sérstakt.

Gyllti Salurinn á Hótel Borg býður upp á hvers konar mannfögnuði og veitingar s.s. árshátíðir, fundi, kokteilboð, erfidrykkjur ofl ofl.

Frekari upplýsingar er að finna á Silfur.is