Hótel Borg í Conde Nast

Hótel Borg fær lofsamlega umfjöllun í hinu þekkta ferðatímariti Conde Nast Traveller. Eins og flestir vita er það eitt virtasta ferðatímarit í heimi og oft nefnt drottning ferðatímaritanna.

Í opnugrein í blaðinu er merkri sögu Hótel Borgar gerð skil en fyrirsögnin er “Art Deco chills out – Rodney Bolt checks out the Icelandic capital’s most classiest Hotel...” Eins og hún ber með sér er talsvert lagt út af innréttingum og útliti hótelsins og virðist blaðamaðurinn hafa verið einkar sáttur við dvöl sína. Jafnframt fær veitingastaðurinn Silfur mjög jákvæða umsögn.

Smellið  hér til að fá greinina sem pdf skjal eða  hér til að fara á heimasíðu þeirra.